Yfirferð vetrarstarfs TÁT
Nú í lok skólaárs voru 157 nemendur skráðir í skólann en voru ríflega 160 þegar mest var. Lang flestir í grunnnámi en tveir í miðnámi og einn í framhaldsnámi. Skiptist fjöldinn hníf jafnt á milli sveitarfélaganna Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar
Söngurinn var vinsælastur, píanó, gítar og trommur fylgdu svo fast á eftir en önnur hljóðfæri mun minna. Að auki var boðið upp á tónfræðikennslu á öllum starfsstöðvum og áttum við mjög gott samstarf við alla grunn og leikskóla byggðarlaganna.
Að venju var mjög líflegt og kraftmikið starf unnið. 48 viðburðir voru skráðir, tónleikar og tónfundir. Tónleikaseríurnar eru á haustin, fyrir jól, mið-vetrar og á vorin. Að auki hafa margir nemendur tekið þátt í hinum ýmsu samfélagsverkefnum með tónlistarflutningi ss heimsóknum á Hornbrekku og Dalbæ, svo eitthvað sé nefnt.
Árlega höldum við Uppskerutónleika, þar sem allir kennarar velja framúrskarandi nemendur til þátttöku. Viðburðurinn átti að vera í mars en vegna erfiðra veðurskilyrða urðum við að aflýsa, eftir að hafa reynt að færa og breyta amk tvisvar sinnum. Í staðinn gerðu allir kennarar upptökur af þínum nemendum og völdum við svo út frá því atriði til þátttöku í Nótunni sem fram fór í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit nú í apríl. Nótan er sameiginleg uppskeruhátíð tónlistarskólanna á norðurlandi. Þar stóðu nemendur sig frábærlega, sér og skólanum til mikils sóma.
Síðasta vika aprílmánaðar markaði svo upphaf vorprófa, sem langflestir nemendur taka. Eru þau próf í samræmi við stöðu og getu nemanda hverju sinni. Þess ber að geta að Grunnpróf tóku þau Bríet Þóra Atladóttir á fiðlu og Ólafur Árni Haraldsson söng. Innilega til hamingju 😊
Í kjölfarið fylgdu svo vortónleikar þar sem langflestir nemendur komu einnig fram. Voru fyrstu tónleikarnir 5 maí og þeir síðustu þann 18 maí.
Skólaslitin voru 28 maí kl 17 í Tjarnarborg Ólafsfirði. Að venju voru veittar viðurkenningar sem og tónlistarflutningur nemenda og kennara. Í fyrsta sinn í vetur var úthlutað styrkjum úr styrktarsjóði skólans og hlutu styrki þau Þröstur Ingvarsson til upptöku á eigin tónlist og Írena Rut Jónsdóttir til áframhaldandi söngnáms við Tónlistarskólann á Akureyri. Einnig barst sjóðnum gjöf frá þeim hjónum Heiðu Hringsdóttir og Magnúsi Magnússyni að upphæð 160.000kr. Þau hafa átt börn og barnabörn í tónlistarnámi í 40 ár samfleytt. Tómas Atli Einarsson, formaður skólanefndar veitti framlaginu viðtöku. Þakkar skólinn þeim hjónum kærlega fyrir þessa rausnarlegu gjöf. Upplýsingar um Styrktarsjóð TÁT má finna á heimasíðu skólans, tat.is
Að endingu var svolítil athöfn af því tilefni að Magnús G. Ólafsson skólastjóri er að láta af störfum og setjast í helgan stein. Þorvaldur aðstoðarskólastjóri og Bjarkey Olsen sviðsstjóri velferðarsviðs Fjallabyggðar, héldu tölu og Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar færði Magga blóm og gjöf fyrir hönd sveitarfélaganna beggja. Að auki færðu kennarar Magga einnig blóm og gjöf. Óskum við Magnúsi G. Ólafsyni til hamingju á þessum tímamótum, þökkum frábært og óeigingjarnt starf hans sem leiðtogi og vinur. Skólinn var hans hugsjón.
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðstoðarskólastjóri.
|
Skíðabraut 12. Dalvík Aðalgötu 13. Ólafsfirði Aðalgötu 27. Siglufirði Sími á skrifstofu: Dalvík 4604990 Ólafsfirði 4649210 Siglufirði 4649130 Netfang: tat@tat.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: tat@tat.is eða í síma D: 4604990 og F: 4649210