Starfið hjá TÁT, tónlistarskólanum á Tröllaskaga, hefur farið vel af stað. Hjá okkur er fjöldinn allur af nemendum sem leggur stund við hljóðfæra- og söngnám. Nemendahópurinn er fjölbreyttur og stór sem er gríðarlegt fagnaðarefni.
TÁT vinnur í samstarfi við Grunnskóla Fjallabyggðar og sér um tónmenntakennslu hjá 1-7.bekk og hefur þar að auki umsjón með valgreininni Tónlistarval á unglingastigi. Leikskólaheimsóknir TÁT eru á sínum stað. Farið er í heimsóknir á leikskólana á Tröllaskaganum, Krílakot, Kötlukot, Leikhóla og Leikskála. Það er því í nógu að snúast í starfi tónlistarkennarans á Tröllaskaga og sinnir því góður hópur fólks.
Markmið tónlistarnáms eru að:
- Bæta hæfni nemenda til að flytja og greina tónlist
- Ýta undir sköpunargetu og hæfni nemenda til að hlusta á og greina tónlist
- Stuðla að auknu tónlistarlífi
- Búa nemendur undir að iðka tónlist á sínum forsendum
|
Skíðabraut 12. Dalvík Aðalgötu 13. Ólafsfirði Aðalgötu 27. Siglufirði Sími á skrifstofu: Dalvík 4604990 Ólafsfirði 4649210 Siglufirði 4649130 Netfang: valdi@tat.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: tat@tat.is eða í síma D: 4604990 og F: 4649210