Nótan á Egilstöðum

Tónlistarskólinn á Tröllskaga fór með 20, nemendur í þremur flokkum á Nótunna á Egilsstöðum um síðust helgi og stóðu þau sig öll frábærlega vel. Við vorum með nemendur í þremur flokkum grunnstigi, miðstigi og opnum flokki og komst hljómsveit sem kennd er við Jóhann Svarfdæling alla leið áfram í Hörpu. Hljómsveit flutti lagið People help the people Hljómsveitina skipa, Daði Þórsson, trommur, Einar Örn Arason, bassi, Þorsteinn Jakob Klemenzson, gítar, Helga Halldórsson, gítar, Styrmir þeyr Traustason, píanó, Gunnhildur Lilja Kristinsdóttir, söngur, Selma Rut Guðmundsdóttir, söngur. Við óskum þessum nemendum til hamingju með áfangann og óskum þeim góðs gengis 2. Apríl þars sem stóra svið bíður þeirra í Eldborgarsal Hörpu.