Tónlistarskólinn á Tröllaskaga minnir á að dagana 21.-25.september er Foreldravika TÁT. Markmið Foreldraviku er að bjóða foreldrum/forráðamönnum að mæta með sínu barni í tíma og sjá hvað þar fer fram. Þessi vika er hugsuð bæði sem hvatning til nemenda og foreldra. Saman sköpum við jákvætt umhverfi fyrir alla, foreldrar skilja tónlistarnámið og átta sig á þeirri vinnu sem fer þar fram auk þess sem barnið upplifir áhuga foreldra sinna á tónlistarnáminu.
Við hvetjum alla foreldra og/eða forráðamenn að mæta með sínu fólki og skyggnast inn í starfið og það sem fer fram. Einnig minnum við á að tónlistarskólinn er opinn og foreldrar ávallt velkomnir þangað.
Einnig minnum við á að tónfræðikennsla er hafin og hvetjum við nemendur til þess að sækja hana.
|
Skíðabraut 12. Dalvík Aðalgötu 13. Ólafsfirði Aðalgötu 27. Siglufirði Sími á skrifstofu: Dalvík 4604990 Ólafsfirði 4649210 Siglufirði 4649130 Netfang: valdi@tat.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: tat@tat.is eða í síma D: 4604990 og F: 4649210