Foreldravika Tónlistarskólans á Tröllaskaga

Texti með fréttamynd
Texti með fréttamynd

Kæru foreldrar og forráðamenn

Foreldravika Tónlistarskólans á Tröllaskaga verður vikuna 12. – 15. september og við viljum fá sem flesta flesta foreldra og forráðamenn í heimsókn þessa viku.

Öllum foreldrum og forráðamönnum verður sent aðgangsorð að visku mánudaginn 9. september og get því kynnt sér betur markmiðasamningana fyrir foreldraviku.

Í foreldravikunni verðu farið yfir markmiðasamninga sem nemandi, kennarar og foreldra gera sín á milli fyrir skólaárið 2016 – 2017, hér fyrir neðan er nánari lýsing.

Á hverju ári gera nemendur og kennarar tónlistarskólans markmiðasamninga.

Samningunum, sem gerðir eru í foreldravikunni, er ætlað að auka frumkvæði nemenda og frelsi til þess að hafa áhrif á eigin nám og verkefnaval.

Nemendur geta þá komið með óskir um verkefni og tónlist sem þeir vilja vinna í um veturinn í samráði við kennara sem sjá svo um að brjóta markmiðin niður og gera nemendum grein fyrir því hvaða aðgerðir þurfa að fylgja til að markmiðunum verði náð.

Markmiðasamningarnir eru gerðir í Visku og er nemendum og forráðamönnum ætlað að fylla inn reitinn um "markmið með orðum nemandans" áður en foreldraviðtalið á sér stað. Mikilvægt er að forráðamenn ræði við unga nemendur um óskir og áhuga áður en viðtölin eiga sér stað.

 

Í foreldravikunni verður hægt að ná tali af skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og deildastjóra ef þörf er á, foreldra og forráðamenn eru beðnir að hafa samband með netpósti  maggi@tat.is og valdi@tat.is og steinisv@tat.is til að skipuleggja viðtalstíma.

 

Með bestu kveðju